laugardagur, mars 05, 2005

 

Bloggið er dautt!

Lengi lifi nýja bloggið!

Allar færslur hér eftir munu birtast á nýja vefnum.

föstudagur, febrúar 25, 2005

 

Mambo makeover

...Pearl Harbour er enn eina ferðina í sjónvarpinu, handa þeim sem ekki sáu hana þessa vikuna. Af hverju þeir sýndu hana aftur er ofar mínum skilningi, hún endaði alveg nákvæmlega eins.

Vinna við makeover aðalsíðunnar er nú vel á veg komin, en ég hef enn ekki ákveðið hvað ég geri með bloggið. Enn vantar nokkrar einingar og ljóðavefurinn var einfalt cut'n'paste þar til ég gef mér tíma til að færa þau inn skref fyrir skref. Myndagalleríið á eftir að hverfa yfir í sama útlit en þar gætu einnig aðrar breytingar orðið.

Í öðrum fréttum er það helst að í síðastliðinni viku fór Firefox 1.0 vafrarinn yfir 25 milljóna niðurhala markið á 99 dögum. Ekki slæmt.

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

 

Skype's the limit

Nokkuð er síðan Grétar Orri vinur minn þýddi Skype Internetsímaforritið margrómaða yfir á íslensku og tókst honum afskaplega vel til, að mínu mati. Hann hefur reyndar bætt um betur og búið til íslenskar tungumálaskrár fyrir tvær athyglisverðar viðbætur fyrir Skype, en báðar eru þær skypesvarar, þ.e.a.s. 'símsvarar' fyrir Skype. Ekki nóg með það heldur hefur hann einnig komið upp spjallvef fyrir annan þeirra, SAM. Grétar er með tengla hér yfir í ýmislegt Skype tengdu.

sunnudagur, febrúar 20, 2005

 

Buns and balls ...

We were three. We had been at it for what seemed to be half an hour already. This was getting intense. But it was my turn, now.
- "Put it in, please!", she exclaimed.
With my throbbing fingers around my stick, I aimed at the hole. After one last look at my balls - I obliged.

Þessi setning bekkjarfélaga míns vakti kæti nærstaddra þar sem ég var að spila pool með einni stelpu úr bekknum og öðrum náunga hér við nám. Var henni þetta að orði þar sem ég mundaði kjuðann og reyndi enn einu sinni að koma kúlunni út af borðinu. Sem ekki tókst í það skiptið heldur...

Það sem hafði dregið mig á Peach Pit var þó ekki poolborðið heldur bollurnar. Ég hafði látið bolludaginn alveg fram hjá mér fara og þarna var kjörið tækifæri til að gera bragarbót á.

Ég held ég hafi stútað 6 í að minnsta, og þegar að bekkjarfélagi minn leit til mín greip ég tækifærið og sagði:

I know what you're thinking. You're thinking, did I eat six or only five? Well to tell you the truth, I forgot myself in all this excitement.



Þær reyndust ágætar og rjómann vantaði ekki. Við tókum síðan einn leik saman þrjú, og síðar um kvöldið tók ég tvo aðra með hinum drengnum. Þann fyrri vann ég en tapaði þeim síðari Hara-Kiri stæl þegar svarta kúlan vó salt eftir mitt síðasta skot, og féll síðan niður í hylinn. Klassískt Doh! moment. Hinn hafði reyndar fengið nokkra aðstoð við að koma niður einum þremur kúlum frá einhverjum pro náunga sem bað um að fá að taka í kjuðann augnablik. Aðfarirnar voru óvægnar en höfðu nákvæmni skurðlæknis.

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

 

Og það snjóar .....


mánudagur, febrúar 14, 2005

 

Ósvífnin!

TANSTAAFL - There Ain't No Such Thing as a Free Lunch. Ég hafði fengið boð um að skrá mig á sms.ac, fyrirtæki sem auglýsti 5 frí sms á dag á móti auglýsingum. Nema hvað.... ég fór að skoða aðeins betur skilmálana og þótt þú borgir ekki fyrir þessi fríu sms-um þá gerir viðtakandinn það! Snögg leit á Google með orðunum "sms.ac scam" (alltaf ráðlegt að framkvæma svona leit áður en maður skráir eða kaupir eitthvað...) leiddi í ljós að fyrirtækið er vafasamara en mig grunaði.


En þetta voru bara vondu fréttirnar. Góðu fréttirnar eru þær að tvö önnur fyrirtæki bjóða upp á afskaplega gagnleg forrit: Google (Picasa) og Grisoft (AVG).

Útgáfa 2.0 af Google Picasa myndskoðara- og skipuleggjaranum er komin út og heldur núna utan um allar mínar myndir. Ég var búinn að minnast á fyrri útgáfuna áður. Auk þess er algjör draumur að leiðrétta og eyða rauðum augum með því. Hint: Hægt er að zooma inn með ctrl+músarhjólinu, ör upp/niður eða PageUp/Pagedown. Og það er í alvörunni frítt. Það hefur afskaplega svalt útlit með tímalínu og getur búið til skjáhvílu og fleira sniðugt.




Hitt forritið er fría AVG 7.0 vírusvörnin frá Grisoft. Þar sem það er (í alvörunni) frítt fyrir einstaklinga er engin ástæða til þess að vera vírusvarnarlaus eða hnupla níðþungum vírusvörnum eins og Norton Antivirus sem ég kvaddi farvel.

Alvara málsins, takk fyrir.
 

Valentínusardagurinn

dagur elskenda, rómantískra gjafa og kvöldstunda er í dag. Og sófatími með sæng og kodda fyrir þá sem gleyma því.

Eins og með aðra merkisdaga þá færir Google logoið sitt í búning í tilefni hans. Og eldri ValentínusarGooglar vísuðu í þessa Java síðu með sætu hoppandi hjarta. Það er gaman að skoða Googlesafnið og sjá seríur sem halda upp á Ólympíuleikana og ýmsa hátíðisdaga. Það er ótrúlegt hvað höfundurinn er sniðugur í að tvinna saman merkið við t.d. Picasso, íshokkí og fleira.

En love is in the air ... einhvers staðar, ekki í Skaufabæ þar sem flugskilyrði fyrir Amor eru varla beysin sem stendur, með snjókomu og hvassviðri og slatta af snjó.

Ég hafði fengið þá snilldarhugmynd í gær að fara í matarinnkaupsleiðangur í Willys á reiðhjólinu. Aðeins eftir að hafa þrjóskast við að hjóla þangað og til baka áttaði ég mér á hver snilldarþáttur hugmyndarinnar var, þ.e. að þessi ferð var á við þokkalegan korters sprett á hlaupabrettinu.

sunnudagur, febrúar 13, 2005

 

Oh, the humanity!

Ég get ekki stillt mig um að setja þessa mynd upp hún er stolin úr grein á fréttavefnum The Age (skráning nauðsynleg). The Register fjallaði einnig um greinina sem greinir frá því hvernig tekist hefur að fá 25.000 rottuheilafrumur til að stjórna F-16 orrustuþotuhermi, jafnvel í gegnum storm og ókyrrð.

Ekki það að frændi minn þurfi nokkuð að hafa áhyggjur af því að eitthvað álíka takið við starfi hans .... hvað fyndist ykkur um að hafa þetta stýrandi þotunni á leið í Spánarsólina?
 

Pacman

Jæja, annað próf að baki. Trúlega fyrsta prófð sem ég tek án öryggisnets, þ.e. ég mætti ekki í prófið og fór beint í upptökuprófið.

Ég tók mér smá tíma í dag fyrir myndatöku með frjálsri aðferð. Sony F717, 1/160, án flash.

Flest innbyggð 'flöss'' eru frekar leiðinleg að vinna með þar sem þau eru allt of sterk og vísa óheppilega. Myndirnar eiga meira sammerkt við Night of the Living Dead eða Marilyn Manson en nokkuð annað, nema maður standi nógu langt frá. Á hinn bóginn verða þær heldur kornóttari þegar flassinu er sleppt og lýsingin er ekki nægjanleg.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?